Ísland 2020

Ísland 2020 – sókn fyrir atvinnulíf og samfélag

Þekking, sjálfbærni, velferð

Ísland 2020 – sókn fyrir atvinnulíf og samfélagStefna skal að því að árið 2020 verði Ísland öflugt samfélag sem stendur vörð um velferð á sjálfbæran hátt í þágu allra hópa samfélagsins.

Stefnumörkunin Ísland 2020 er framtíðarsýn sem varð til í samtölum og samvinnu hundruða Íslendinga um land allt og samráði við landshlutasamtök, sveitarfélög, verkalýðshreyfingu og samtök í atvinnulífi. Tillögurnar eru afrakstur þessara funda, vinnu sérfræðihópa, stöðumats háskólastofnana og greiningar á því hvaða utanaðkomandi þættir gætu haft áhrif á þróunina á Íslandi næstu árin. Þessir fundir og verkefni voru undir merkjum sóknaráætlunar fyrir Ísland 2020. Markmið starfsins var að setja fram sýn sem með hlutlægum markmiðum myndi stuðla að því að Ísland yrði í fararbroddi annarra þjóða í verðmætasköpun, menntun, velferð og lífsgæðum.

Ísland 2020 er stefnumarkandi skjal um öflugra atvinnulíf og samfélag. Það felur í sér áform um fjárfestingar í mannauði og nauðsynlegum innviðum efnahagslífsins og stefnu um hvernig megi styrkja menntun og menningu, nýsköpun og þróun, umhverfi og samfélagslega innviði. Áformin eru byggð á grundvallaratriðum um atvinnustefnu sem unnin var með fulltrúum verkalýðshreyfingar og samtaka atvinnulífsins, formönnum nefnda Vísinda- og tækniráðs og fulltrúum þingflokka.

Leiðarljósið frá upphafi hefur verið að setja fram heildstæða sýn og sameiginleg markmið til að tryggja markvissari og öflugri stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Í kjölfarið yrðu opinberar áætlanir einfaldaðar og sameinaðar til þess að þær stuðli að eflingu atvinnu og menntunar og auðveldi endurskipulagningu opinberrar þjónustu. Þannig er einfaldari áætlanagerð ætlað að tryggja betri nýtingu fjármuna og öflugt samstarf stjórnsýslustiga og stofnana.

Við stefnumótunina voru sérstaklega hafðir í huga þeir hópar sem hætt er við atvinnuleysi til langs tíma í kjölfar efnahagshrunsins. Það er aldrei mikilvægara en í efnahagskreppu að gera áætlanir sem stuðla að samfélagslegri þátttöku og virkni allra auk þess að styrkja samfélagslega innviði velferðarþjónustu, menntakerfis og menningarlífs. Gengið er út frá því að öll verkefni sem tengjast Íslandi 2020 taki tillit til kynjasjónarmiða.

Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf sem einkennist af ábyrgum vexti er hornsteinn Íslands 2020. Lykilþættir til að það þróist farsællega eru áherslur á samfélag þekkingar, velferðar og sjálfbærni. Til að meta hvernig gengur að framkvæma stefnuna Ísland 2020 eru sett fram 15 mælanleg markið sem mótast hafa í virku samráðsferli við þjóðina á undanförnum mánuðum auk 5 markmiða sem tengjast efnahagslegri hagsæld og lífsgæðum. Stefnur og opinberar áætlanir verða endurskoðaðar og samþættar til að vinna að þessum meginmarkmiðum.

Þá eru með stefnunni settar fram 30 aðgerðir og verkefni sem ætlað er að vera fyrstu skref í átt að Íslandi 2020. Eitt veigamesta verkefnið er fjárfestingaráætlun um þróun innviða, atvinnumála, mannauðs og samfélags. Gerð hennar kallar á einföldun, sameiningu og samþættingu allra helstu stefnumarkandi áætlana hins opinbera og mörkun fjárlagaramma til lengri tíma. Þau meginstef sem fram koma í stefnumörkuninni sem hér er sett fram voru sameiginleg hjá þorra þeirra sem komu að stefnumótun og þjóðfundum á vegum sóknaráætlunar fyrir Ísland.

Skjalinu er skipt í tvo hluta. Annars vegar framtíðarsýn og mælanleg markmið og hins vegar tillögur og verkefni á ábyrgðasviði einstakra ráðuneyta.

Framtíðarsýn og mælanleg markmið

Tillögur um leiðir:


Upplýsingar á ensku um Ísland 2020 er að finna á vefslóðinni eng.forsaetisraduneyti.is/iceland2020