Mælikvarðar
1. Að lækka hlutfall íbúa með 75% örorkumat á aldrinum 18-66 ára úr 7,3% í 5,7% árið 2020
2. Að lækka hlutfall atvinnulausra úr 7% árið 2010 í 3% af heildarvinnuafli árið 2020
3. Að auka jöfnuð á Íslandi með lækkun Gini stuðuls fyrir ráðstöfunartekjur í um 23 árið 2020.
4. Að bæta stöðu jafnréttismála þannig að gildi jafnréttisvísitölunnar global gender gap index verði nálægt 0,9 árið 2020.
5. Að auka vellíðan og góða andlega heilsu þannig að meðaltal mælinga, samkvæmt vellíðunarkvarðanum hækki úr 26,6 árið 2009 í 28 árið 2020
6. Að hlutfall Íslendinga á aldrinum 25-64 ára sem ekki hafa formlega framhaldsmenntun fari úr 30% niður í 10% árið 2020
7. Að 4% af landsframleiðslu sé varið til rannsókna og þróunar og að hlutfall framlags fyrirtækja verði 70% á móti 30% framlagi ríkisins í samkeppnissjóði og markáætlanir
8. Að Ísland verði meðal 10 efstu þjóða árið 2020 í rafrænni stjórnsýsluvísitölu og rafrænni þátttökuvísitölu Sameinuðu þjóðanna.
10. Að eldsneyti í samgöngum og sjávarútvegi verði a.m.k. 10% af endurnýjanlegum uppruna árið 2020
11. Að Ísland taki að sér sambærilegar skuldbindingar og önnur Evrópuríki gagnvart loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna árið 2020 og nettólosun gróðurhúsalofttegunda utan viðskiptakerfis lækki um 38% frá árinu 2008
13. Að árið 2020 gangi 75% nýskráðra bifreiða, undir fimm tonnum að þyngd, fyrir eldsneyti af endurnýjanlegum uppruna
14. Að hlutfall innlendrar matvöru í matvöruneyslu landsmanna aukist um 10% fyrir árið 2020
15. Að árið 2020 verði færni íslenskra grunnskólanemenda sambærileg við 10 efstu þjóðir samkvæmt OECD PISA rannsókninni á lesskilningi og læsi á stærðfræði og raungreinar
16. Að opinberar skuldir (án lífeyrisskuldbindinga og viðskiptaskulda) verði ekki hærri en 60% af landsframleiðslu árið 2020.
17. Að verðbólga árið 2020 verði ekki yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands, þ.e. nú ekki hærri en 2,5%
19. Að Ísland verði meðal fimm efstu þjóða á kvarða þróunarstuðuls Sameinuðu þjóðanna (HDI)