Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Af hverju voru stýrivextir hækkaðir?

14.11.2008

Hækkun stýrivaxta er aðeins ein af nokkrum bráðabirgðaaðgerðum sem allar miða að því að skapa nægan stöðugleika á gjaldeyrismarkaði. Til að komast út úr gjaldeyriskreppunni þarf að nást markaðsverð á krónuna með því að setja hana á flot á ný. Sú aðgerð er ekki án áhættu. Búist er að við ákveðinn hluti erlends fjármagns leiti úr landi um leið og hömlum á gjaldeyrisviðskiptum hefur verið að fullu aflétt og hafi neikvæð áhrif á gengið til að byrja með. Mikilvægast er að koma í veg fyrir áframhaldandi útstreymi fjármagns sem myndi valda enn frekara gengislækkun með hækkun erlendra lána og aukinni verðbólgu í kjölfar hækkandi innflutningsverðlags . Gengi krónunnar er nú þegar talsvert undir jafnvægisgengi og viðskiptajöfnuður óðum að snúast þannig að gjaldeyrir frá utanríkisviðskiptum verður meiri en eftirspurn eftir gjaldeyri. Hvort tveggja ætti að stuðla að frekar hraðri styrkingu krónunnar. Jákvæðir raunstýrivextir, þ.e. stýrivextir umfram verðbólgu, eru einn af þeim þáttum sem mikilvægir eru til stuðnings þegar krónan er sett á flot. Stýrivextina verður því að skoða í samhengi við það mikilvæga markmið að stöðugleiki komist á gjaldeyrismarkaði svo gengið geti styrkst, verðbólga lækkað (bæði vegna gengisbreytinga og minnkandi eftirspurnar) og þar með skapist forsendur fyrir hraðri lækkun stýrivaxtanna til stuðnings atvinnulífinu.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica