Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Af hverju var leitað samstarfs við IMF?

14.11.2008

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er eina stofnunin sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem ráðgefandi aðili við að hjálpa ríkjum út úr alvarlegum gjaldeyriskreppum. Áætlun, unnin í samvinnu við IMF, er jafnframt lykillinn aðkomu annarra þjóða við lausn gjaldeyriskreppa. IMF getur stuðlað að viðurkenningu á greiðslustöðvun eða meðferð erlendra skuldbindinga og þannig opnað alþjóðlega greiðslukerfið á ný fyrir viðkomandi hagkerfi. Þá getur IMF auðveldað mjög samningaviðræður við lánadrottna um skuldauppgjör enda ræður afstaða IMF til slíkra samningsdraga gjarnan úrslitum um viðbrögð kröfuhafa.

Gjaldeyriskreppur geta haft svo víðtækar og alvarlegar afleiðingar á efnahag og atvinnulíf þjóða og undið svo hratt upp á sig að tíminn til viðbragða er ekki mikill. Vegna þess mættu sérfræðingar IMF til starfa hér á landi mjög snemma í ferlinu til að safna gögnum og undirbúa tillögur að aðgerðum.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica