Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Hverjir aðrir en IMF koma að málum?

14.11.2008

Auk sérfræðinga IMF hafa íslensk stjórnvöld leitað til alþjóðlegra ráðgjafafyrirtækja á borð við McKinsey & Company og Oliver Wyman, alþjóðlegu endurskoðunarfyrirtækjanna KPMG, PriceWaterhouseCoopers og Deloitte & Touche auk virtra erlendra og innlendra sérfræðinga á borð við fyrrum forstjóra finnska fjármálaeftirlitsins sem mun skoða lög og reglur um fjármálastarfsemi hér á landi og hvernig bankaeftirliti hefur verið háttað. Sérstakir starfshópar um afmörkuð verkefni, skipaðir fulltrúum ráðuneyta, stofnana og atvinnulífsins auk sérfræðinga á viðkomandi sviðum, hafa verið starfandi.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica