Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Af hverju hefur IMF sætt svo mikilli gagnrýni og margir varað við aðkomu sjóðsins?

14.11.2008

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur í áranna rás gjarnan verið kallaður til aðstoðar þegar ríki standa frammi fyrir mjög erfiðum úrlausnarefnum. Viðkomandi hagkerfi eru oft með mjög vanþróaða markaði og veika innviði hvað varðar stjórnsýslu og ríkisfjármál. Því er erfitt að bera efnahagsleg og samfélagsleg áhrif af áætlunum IMF saman við afleiðingar þess að leita ekki aðstoðar. En lengi vel fylgdu aðstoð frá sjóðnum mjög ítarleg skilyrði um róttækar aðgerðir til að treysta innviði og ná tökum á ríkisfjármálum svo efnahagslegur stöðugleiki gæti komist á. Slíkar aðgerðir voru oft umdeildar og mjög misjafnt hvernig þeim var framfylgt af hálfu þeirra ríkja sem óskuðu eftir aðstoð. Ríki sem höfðu eytt mjög um efni fram stóðu sum hver frammi fyrir mjög sársaukafullum niðurskurði útgjalda. Gagnrýnendur IMF hafa bent á að í verstu tilfellum hafi útgjöld til heilbrigðis- og menntamála verið skorin niður og markaðsvæðing haft í för með sér ýmsar óæskilegar samfélagslegar afleiðingar.

Af hálfu IMF hefur mikil vinna verið lögð í endurskoðun á aðkomu sjóðsins með það í huga að einfalda þau skilyrði sem sett eru fyrir samvinnu. Þá tekur umfang skilyrða um aðgerðir eðlilega mið af stöðu þess sem samfélags sem verið er að aðstoða. Þetta sést glöggt á þeirri áætlun sem íslensk stjórnvöld unnu í samráði við sérfræðinga IMF. Þar eru engin skilyrði um grundvallarbreytingar.

Gagnrýnendur hafa m.a. óttast að svo strangar kröfur verði gerðar um aðhald í ríkisfjármálum til að tryggja endurgreiðslugetu ríkissjóðs á erlendum kröfum að þær muni bitna mjög hart á svigrúmi hins opinbera til að draga úr áhrifum efnahagsvandans á heimili og fyrirtæki. Í raun er gert ráð fyrir að láta sjálfvirka sveiflujöfnun virka að fullu á næsta ári og við útreikning á bata samkvæmt langtímaaðhaldi í ríkisfjármálum er reiknað út frá hagsveifluleiðréttum frumjöfnuði sem gefur því meiri slaka sem kreppan er dýpri.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica