Halda Íslendingar fullveldi um mótun samfélagsins?
Já tvímælalaust eins og sést á áætluninni sjálfri. Þar eru engin skilyrði um þróun samfélagsins í ákveðna átt. Um er að ræða nauðsynlegustu aðgerðir til að koma hér á efnahagsstöðugleika og vinna landið út úr gjaldeyriskreppu. Í ljósi mikils samdráttar í hagkerfinu og erlendra lántaka til að vinna þjóðina út úr erfiðleikunum og endurvekja traust er einfaldlega nauðsynlegt að leggja línur um aðhald í ríkisfjármálum. Boðuð úttekt erlendra sérfræðinga á aðdraganda bankakreppunnar, lögum og reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja og framkvæmd bankaeftirlits er skynsamleg ráðstöfun og krafa Íslendinga sjálfra ekki síður en sérfræðinga IMF.
