Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Hvernig er ferill samstarfs við IMF?

14.11.2008

IMF sendir sendir teymir sérfræðinga til lands í vanda. Þar er unnið að greiningu og gagnaöflun í nánu samráði við stjórnvöld viðkomandi ríkis. Að lokinni þeirri vinnu er viljayfirlýsing eða yfirlýsing um áform (Letter of Intent) undirrituð af fjármálaráðherra og bankastjórn seðlabanka. Yfirlýsingin, sem unnin er í samstarfi stjórnvalda, seðlabanka og sérfræðinga IMF inniheldur greiningu á vandanum, aðgerðaáætlun og ósk um aðstoð og fyrirgreiðslu frá IMF.

Stjórn IMF afgreiðir lánsbeiðnina með tilvísun í þá áætlun sem fyrir liggur í viljayfirlýsingunni og að því loknu er lánið afgreitt í hlutum eða þá að lánsheimildin hækkar í þrepum í takt við þá áfanga sem tilgreindur eru í aðgerðaáætluninni. Náist áfangar ekki að mati sjóðsins getur útborgun lánsins eða hækkun lánsheimildar fallið niður. Í sumum tilfellum er gert ráð fyrir að breytingar geti orðið og þær þá unnar í samráði við sérfræðinga IMF. Í þessu felst hin svokallaða skilyrðing eða conditionality.

Þessu til viðbótar skrifa sérfræðingarnar í sendinefnd IMF skýrslu (Staff Report) þar sem ítarlega er farið yfir stöðu og horfur í viðkomandi landi og settar fram ábendingar og frekari gögn til stuðnings því sem fram kemur í áætluninni.

Að jafnaði er viljayfirlýsing viðkomandi ríkisstjórna og seðlabanka ekki gerð opinber fyrr en stjórn IMF hefur fengið hana í hendur og afgreitt málið. Stundum er veitt heimild til að opinbera yfirlýsinguna sjálfa þegar hún er komin á dagskrá stjórnar og allir fulltrúar hafa fengið hana í hendur til undirbúnings afgreiðslunni. Slíka heimild fékk ríkisstjórn Íslands. Öll önnur gögn sem tengjast áætlunni, svo sem töflur um áfanga og skýrsla sérfræðingahópsins sem hér vann með stjórnvöldum, verða opinber um leið og stjórn sjóðsins hefur fjallað um málið í heild.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica