Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Hver eru skilyrðin sem IMF setur íslenskum stjórnvöldum?

14.11.2008

Í raun er réttara að tala um áfanga í vinnunni fram undan en skilyrði. Áfangarnir sem þurfa að nást samkvæmt áætlun um efnahagslegan stöðugleika eru eftirtaldir:

Áfangar sem ná þarf áður en áætlunin kemur til afgreiðslu eru annars vegar að hafa hækka stýrivexti í 18% (sbr. svar við spurningu um ástæðu hækkunar stýrivaxta) og hins vegar að hafa skipað nefnd fulltrúa forsætisráðuneytis, fjármálaeftirlits, seðlabanka, fjármálaráðuneytis og viðskiptaráðuneytis undir forsæti sérfræðings sem stýrir ferlinu við enduruppbyggingu bankakerfisins.

Áfangar þar sem meta á skilvirkni í verkinu eru tveir. Í fyrsta lagi þarf ríkið að hafa endurfjármagnað bankana fyrir lok febrúar 2009 þannig að eiginfjárhlutfall þeirra sé a.m.k. 10%. Í öðru lagi þarf reyndur sérfræðingur í bankaeftirliti að hafa lokið mati á lögum og reglum um fjármálamarkaðinn og úttekt á framkvæmd bankaeftirlits og lagt fram tillögur sínar til úrbóta fyrir lok mars 2009.

Áfangar í framvindu eru fjórir: Áætlun um endurheimtur eigna þarf að vera tilbúin fyrir lok nóvember 2008. Fjármálaeftirlitið þarf að hafa lokið skoðun á viðskiptaáætlun nýju bankanna fyrir miðjan janúar 2009. Alþjóðlegt endurskoðunarfyrirtæki skal hafa lokið mati eigna bæði gömlu og nýju bankanna í samræmi við bestu alþjóðlegu aðferðir. Ganga frá áætlunum um langtímaaðhald í ríkisfjármálum og efla umgjörðina um rammafjárlög fyrir mitt ár 2009.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica