Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Neyðir IMF Íslendinga til að borga allar skuldir bankanna?

14.11.2008

Nei en í áætlun stjórnvalda sem framkvæmdstjórn IMF hefur samþykkt er útfært nánar hvernig mati á eignum gömlu og nýju bankana skuli háttað þannig að færsla nettó eigna inn í nýju bankana hafi ekki áhrif á kröfuhafa gömlu bankanna. Á þetta hafa stjórnvöld lagt áherslu frá upphafi en í áætluninni er matsferlinu lýst og verkefninu markaður tímarammi. Í 24. lið áætlunarinnar þar sem fjármögnunarþörf Íslendinga er lýst kemur fram að af um 24 milljarða bandaríkjadala heildarþörf þarf ríkissjóður um 5 milljarða dala en mismunurinn, 19 milljarðar dala, eru eftirstöðvar lána sem kröfuhafar sækja heimtur á til gömlu bankanna. Varðandi innlánstryggingarnar er sú stefna íslenskra stjórnvalda ítrekuð í lið 9 að ná sambærilegu samkomulagi við alla erlenda innstæðueigendur og að Íslendingar muni standa við allar lagalegar skuldbindingar sínar í samræmi við EES samninginni. Í lið 12 er því einnig gert ráð fyrir að inni í áætlaðri lánsfjárþörf ríkisins vegna bankakreppunnar séu lán til að mæta erlendum kostnaði við innstæðutryggingar í samræmi við ákvæði EES samningsins.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica