Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Hafa stjórnvöld svigrúm til að hjálpa heimilum og fyrirtækjum í IMF samstarfi?

14.11.2008

Já því á næsta ári, þegar samdrátturinn vegna bankakreppunnar kemur fram að fullum þunga, eiga sjálfvirkir sveiflujafnarar ríkisfjármálanna að fá að virka að fullu svo ríkissjóður mun taka á sig mikinn halla og þar með draga úr mesta högginu. Í áætlunum um langtímaaðhald og bata í ríkisfjármálunum til að vinna þjóðina út úr skuldum vegna bankakreppunnar er miðað við hagsveifluleiðréttan frumjöfnuð sem þýðir að dragist kreppan á langinn hefur ríkissjóður meira svigrúm til að mæta afleiðingum hennar með raunhalla á rekstri. Ef samdrátturinn verður skammvinnari er þetta svigrúm samkvæmt áætluninni að sama skapi minna.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica