Af hverju voru stjórnvöld aðgerðalaus langtímum saman?
Hvorki stjórnvöld, embættismenn né þeir erlendu og innlendu ráðgjafar og sérfræðingar sem fengnir voru strax til starfa við lausn mála hafa verið aðgerðalausir um lengri eða skemmri tíma. Þótt ekki hafi gengið á með stórtíðindum alla daga var þrotlaust starf í gangi við að vega, meta og útfæra leiðir til lausnar á fjölmörgum vandamálum og stýra endurreisn íslensks fjármálakerfis. Nær samfelld samskipti voru í gangi við allar helstu vina- og viðskiptaþjóðir okkar.
