Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Felur áætlunin í sér að aðilar sæti ábyrgð?

14.11.2008

Já því sérstaklega er tekið á ítarlegri rannsókn óháðra erlenda sérfræðinga í tveimur greinum hennar. Í lið 6 er það skilgreint sem mikilvægur hluti þeirrar matsvinnu sem Alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið Oliver Wyman hefur yfirumsjón með að rannsaka það sem átti sér stað innan bankakerfisins í aðdraganda hrunsins og þá sérstaklega hvort æðstu stjórnendur eða helstu eigendur bankanna hafi gerst sekir um afglöp í rekstri eða misnotkun á bönkunum. Í lið 10 er mælt fyrir um endurskoðun reynds erlends bankaeftirlitsmanns á regluumgjörð fjármálastarfsemi og allri framkvæmd bankaeftirlits. Stjórnvöld hafa ráðið fyrrum yfirmann finnska fjármálaeftirlitsins til að stýra þessari rannsókn sem tekur m.a. til eftirlitsins með íslenskum fjármálafyrirtækjum í heild. Í 10. lið er líka tekið fram að fyrrverandi yfirstjórnendur og helstu hluthafar í yfirteknu bönkunum sem gerst hafa sekir um afglöp í rekstri eða misnotkun á bönkunum eiga ekki að gegna sambærilegum störfum næstu þrjú árin.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica