Verða lífeyrissjóðirnir að bera óbætt tjónið vegna hruns bankanna?
Til lengri tíma litið er besta vörn lífeyrissjóðanna og helsta hagsmunamál að atvinnulífið vinni sig sem hraðast út úr efnahagssamdrættinum og efnahagslegur stöðugleiki komist á. Að því leyti fara hagsmunir þeirra og allra annarra saman enda eru íslensku lífeyrissjóðirnir enn meðal þeirra öflugustu í heimi þrátt fyrir fjármálakreppuna. Þetta er helsta ástæðan fyrir því að í áætluninni er ekki gert ráð fyrir að ríkissjóður taki á sig byrðar umfram það sem nauðsynlegt er til að komast út úr gjaldeyriskreppunni og beita velferðarkerfinu til að draga úr áföllum fjölskyldnanna í landinu. Með þessu er fyrst og fremst verið að slá skjaldborg um opinbera þjónustu og velferðarkerfið.
