Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Hvað er líklegt að opinberar skuldir verði miklar?

14.11.2008

Í lið 12 er áætlað að í lok næsta árs geti vergar heildarskuldir hins opinbera, bæði erlendar og innlendar, numið um 109% af vergri landsframleiðslu. Á móti þessum auknu skuldum koma svo eignir í nýju bönkunum þremur svo hreinar skuldir hins opinbera hækka líklega mun minna. Í lið 24 kemur fram að þörf ríkisins fyrir erlent lausafé sé um 5 milljarða bandaríkjadala. Af því er gert ráð fyrir að 2 milljarðar fáist frá IMF og 3 milljarðar frá öðrum þjóðum.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica