Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Felur kreppa í sér tækifæri?

14.11.2008

Svarið við þessari spurningu veltur ekki síst á sjónarhorninu. Eflaust má líta svo á að í öllum hamförum eða eyðileggingu leynist um leið sprotar þess sem koma skal í staðinn fyrir það sem er að hverfa. Í endurreisnarstarfi felast líka þau tækifæri að læra af reynslunni og byggja upp þannig að ólíklegt sé að sömu áföll dynji yfir aftur. En frá sjónarhóli þeirra sem missa atvinnu sína og standa frammi fyrir hratt versnandi lífskjörum og erfiðleikum við grundvallaratriði á borð við að standa í skilum með afborganir af heimilinu er kreppa fyrst og fremst tímabil erfiðleika sem stjórnvöld verða að leita allra leiða til að vinna samfélagið sem fyrst út úr á sama tíma og reynt er að draga úr áhrifunum á einstaklinga, fjölskyldur, börn og atvinnulíf í landinu. Þess vegna er höfuðáherslan lögð á þessa áætlun um efnahagslegan stöðugleika svo við fáum sem fyrst grundvöll til að hefja endurreisnarstarfið á.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica