Smelltu á spurningu og svarið birtist fyrir neðan spurningalistann.

Verður gjaldeyrisvaraforðinn notaður til að verja krónuna?

19.11.2008

Forgangsverkefni Seðlabanka Íslands er nú að koma stöðugleika á gengi krónunnar enda er það mikilvægt skref til að koma í veg fyrir öldu gjaldþrota og enn frekari samdrátt hagkerfisins. Gert er ráð fyrir að krónan verði sett á flot á ný og genginu verði leyft að nálgast jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar. Verulega miklar sveiflur á gengi gjaldmiðils geta þó verið óæskilegar og hefur Seðlabankinn til þess nokkur tæki eins og lýst er í 19. lið áætlunarinnar. Bankinn mun m.a. geta beitt gjaldeyrisforðanum til þess að styðja við markaðinn og koma í veg fyrir of miklar sveiflur. Hann mun þó ekki nýta forðann til þess að verja eitthvað ákveðið gengi krónunnar enda bankinn ekki á gengismarkmiði.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica