Jafnréttissjóður
Starfræktur skal sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður. Tilgangur sjóðsins er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis.
Styrkir Jafnréttissjóðs skulu að meginstefnu veittir til rannsókna á stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði en einnig á öðrum sviðum samfélagsins, samkvæmt nánari fyrirmælum í reglum um sjóðinn og starfsreglum stjórnar sjóðsins.
Sjóðurinn starfar skv. reglum um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs nr. 513/2006
Ekki var úthlutað úr sjóðnum á árinu 2009
Auglýsing um styrki Jafnréttisjóðs 2008
Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum en þau skal senda ásamt fylgigögnum á netfangið postur(hjá)for.stjr.is. Eyðublöðin er á pdf-sniði sem hægt er að fylla inn í. Til þess þarf Acrobat Reader 8. Forritið er gjaldfrjálst og hægt að sækja það á Netið.
Núverandi stjórn Jafnréttissjóðs:
Skipuð af forsætisráðherra 30. júní 2006 til 30. júní 2010
- Gylfi Dalmann, vinnumarkaðsfræðingur, formaður
- Aðalheiður Inga Þ. Rafnar, sagnfræðingur, tilnefnd af menntamálaráðherra
- Hildur Jónsdóttir, formaður jafnréttisráðs, tilnefnd af félagsmálaráðherra
Varamenn:
- Fjóla Agnarsdóttir, hagfræðingur hjá Seðlabankanum
- Bolli Thoroddsen, verkfræðinemi
- Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu
