Jafnréttissjóður

Jafnréttissjóður

JafnréttissjóðurStarfræktur skal sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður. Tilgangur sjóðsins er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis.

Styrkir Jafnréttissjóðs skulu að meginstefnu veittir til rannsókna á stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði en einnig á öðrum sviðum samfélagsins, samkvæmt nánari fyrirmælum í reglum um sjóðinn og starfsreglum stjórnar sjóðsins.

Sjóðurinn starfar skv. reglum um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs nr. 513/2006

Ekki hefur verið úthlutað úr sjóðnum síðan 2008.

Auglýsing um styrki Jafnréttisjóðs 2008

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum en þau skal senda ásamt fylgigögnum á netfangið postur(hjá)for.stjr.is. Eyðublöðin er á pdf-sniði sem hægt er að fylla inn í. Til þess þarf forritið Acrobat Reader 8 en það er gjaldfrjálst og hægt að sækja á netið.


Núverandi stjórn Jafnréttissjóðs:

Skipuð af forsætisráðherra 30. júní 2006 til 30. júní 2010

  • Gylfi Dalmann, vinnumarkaðsfræðingur, formaður
  • Aðalheiður Inga Þ. Rafnar, sagnfræðingur, tilnefnd af menntamálaráðherra
  • Hildur Jónsdóttir, tilnefnd af félagsmálaráðherra

Varamenn:

  • Fjóla Agnarsdóttir
  • Bolli Thoroddsen
  • Ingi Valur Jóhannsson

Þetta vefsvæði byggir á Eplica