Gjöf Jóns Sigurðssonar

Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar

Sjóðurinn Gjöf Jóns Sigurðssonar var stofnaður samkvæmt erfðaskrá Ingibjargar Einarsdóttur, ekkju Jóns Sigurðssonar forseta, dagsettri 12. desember 1879. Alþingi samþykkti reglur um sjóðinn 24. ágúst 1881, og voru þær staðfestar af konungi 27. apríl 1882. Sjóðurinn veitti um skeið allmörgum fræði- og vísindamönnum viðurkenningu fyrir vel samin rit og styrkti útgáfu þeirra og merkra heimildarrita. Síðar varð sjóðurinn sakir verðbólgu lítils megnugur. Hinn 29. apríl 1974 ákvað Alþingi að efla hann með árlegu framlagi og er nú veitt til hans á fjárlögum jafngildi árslauna prófessors við Háskóla Íslands. Í tímanna rás hafa verið gerðar lítils háttar breytingar á reglum um sjóðinn, en hin upphaflegu markmið hafa þó jafnan verið höfð í huga.

Styrkir eru auglýstir og hefur þeim undanfarin ár verið úthlutað á tveggja ára fresti. Sjá fréttatilkynningu um síðustu úthlutun.

Alþingi kýs þriggja manna stjórn til tveggja ára í senn ásamt varamönnum. Nefndin skiptir með sér störfum.

Texti síðustu auglýsingar:

Gjöf Jóns Sigurðssonar

Í reglum frá árinu 1881 um Gjöf Jóns Sigurðssonar er kveðið á um að fé úr sjóðnum megi veita ,,1. til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg rit, 2. til að styrkja útgáfur slíkra rita annars kostar og 3. til þess að styrkja útgáfur merkilegra heimildarrita.“ Enn fremur segir: ,,Öll skulu rit þessi lúta að sögu Íslands, bókmenntum þess, lögum, stjórn eða framförum.“ Á árinu 1974 var bætt við ákvæði þess efnis ,,að þegar sérstök ástæða þyki til, megi verja fé til viðurkenningar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem hafa vísindarit í smíðum.“

Umsækjendur um verðlaun úr sjóðnum skulu senda nefndinni þrjú eintök þeirra rita er þeir óska að tekin verði til álita. Miðað er við rit, gefin út eftir síðustu úthlutun úr sjóðnum. Æskilegt er að þeim fylgi umsögn viðurkenndra fræðimanna, sérfróðra um efnið.

Framangreind gögn skulu send forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu, 150 Reykjavík, merkt verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar, fyrir 1. september næstkomandi.

Reykjavík,  17. júní 2010

Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar

Verðlaunanefndin er kosin af Alþingi. Í henni eiga nú sæti:

  • Sverri Jakobsson
  • Sturla Böðvarsson
  • Hólmfríður Garðarsdóttir
Vara menn eru:
  • Bjarkey Gunnarsdóttir
  • Brynhildur Anna Ragnarsdóttir
  • Kristinn M. Bárðarson

Úthlutun fyrir árið 2010

Úthlutun styrkja úr sjóðnum „Gjöf Jóns Sigurðssonar“ fyrir árið 2010 er lokið. Að þessu sinni eru veittar 13 viðurkenningar, samtals 11.700.000 kr. Þær eru eftirfarandi:

Anna Hinriksdóttir,
Ástin á tímum afa og ömmu

 400.000

Árni Heimir Ingólfsson,
Jón Leifs: Líf í tónum

 1.200.000

Davíð Ólafsson,
Wordmongers: Manuscript Culture in the Age of Print and the Case of Nineteenth-Century Icelan

 1.200.000

Friðrik G. Olgeirsson,
BHM: Saga Bandalags háskólamanna 1958-2008; Ræktun fólks og foldar: Ævisaga Valgerðar Halldórsdóttur og Runólfs Sveinssonar skólastjóra og sandgræðslustjóra; Saga félags járniðarmanna 1920-2006

 1.550.000

Gavin Lucas,
Hofsstaðir

 400.000

Guðjón Friðriksson,
Saga af forseta. Forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar. Útrás, athafnir, átök og einkamál

 600.000

Guðmundur Magnússon,
Nýja Ísland: Listin að týna sjálfum sér; Tækni fleygir fram: Tæknifræði á Íslandi og saga Tæknifræðingafélags Íslands

 1.000.000

Guðni Th. Jóhannesson,
Hrunið: Ísland á barmi gjaldþrots og upplausnar

 600.000

Jón Hjaltason,
Saga Akureyrar, 5. bindi: „Vor Akureyri“ 1940-1962

 750.000

Jón Þ. Þór,
Saga vélstjórafélags Íslands

 400.000

Sigrún Pálsdóttir,
Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar 1847-1917

 1.200.000

Sigurður Gylfi Magnússon,
Wasteland with words: A social history of Iceland

 1.200.000

Unnur Birna Karlsdóttir,
Þar sem fossarnir falla: Náttúrusýn og nýting fallvatna á Íslandi 1900-2008

 1.200.000

Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar er kosin af Alþingi. Í henni eiga nú sæti Sverrir Jakobsson, Hólmfríður Garðarsdóttir og Sturla Böðvarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica