Þjóðhátíðarsjóður

Þjóðhátíðarsjóður

Árlegum úthlutunum úr Þjóðhátíðarsjóði lauk 2010 vegna ársins 2011. Á vef Alþingis má sjá þingsályktun um að leggja niður sjóðinn.

Þjóðhátíðarsjóður starfaði samkvæmt. skipulagsskrá nr. 361/1977 og var tilgangur hans „að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.“ Stofnfé sjóðsins var ágóði Seðlabanka Íslands af útgáfu þjóðhátíðarmyntar í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi 1974, og myndaði hann höfuðstól Þjóðhátíðarsjóðs.

Stjórn sjóðsins úthlutaði ráðstöfunarfé hverju sinni í samræmi við megintilgang hans. Samkvæmt skipulagsskrá skyldi við það miðað „að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.“

Upplýsingar um styrkveitingar:

Stjórn

Stjórn sjóðsins er skipuð fimm manns til fjögurra ára í senn. Kaus Alþingi þrjá, einn var tilnefndur af ríkisstjórn og annar af Seðlabankanum, sem lét sjóðsstjórn í té ritara- og skrifstofuaðstoð. Forsætisráðherra skipaði formann stjórnar og staðgengil hans, venjulega hina sömu og ríkisstjórnin tilnefndi.

Síðasta stjórn Þjóðhátíðarsjóðs:

  • Margrét Bóasdóttir, formaður
  • Kristín Halldórsdóttir
  • Björn Teitsson
  • Margrét K. Sverrisdóttir
  • Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, tilnefndur af Seðlabanka Íslands

Varamenn:

  • Gísli Sverrir Árnason
  • Unnur Stefánsdóttir
  • Jón Hjartarson
  • Jón Þ. Sigurgeirsson framkvæmdastjóri, tilnefndur af Seðlabanka Íslands

Sigfús Gauti Þórðarson í Seðlabanka Íslands er ritari sjóðsstjórnar.

Kosið var í stjórn 18. desember 2009, til fjögra ára. 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica