Hoppa yfir valmynd
16. maí 2003 Forsætisráðuneytið

Úthlutun styrkja úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna 2003

Úthlutað hefur verið styrkjum þessa árs úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Norska Stórþingið samþykkti í tilefni ellefu alda afmælis Íslandsbyggðar 1974 að færa Íslendingum eina milljón norskra króna að gjöf í ferðasjóð. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal ráðstöfunarfénu, vaxtatekjum af höfuðstól, varið til að styrkja hópferðir Íslendinga til Noregs.

Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum 1976 og fór nú fram tuttugasta og sjötta úthlutun. Ráðstöfunarfé sjóðsins var að þessu sinni um 650 þúsund krónur. Styrkumsóknir voru 17, en samþykkt var að styrkja eftirtalda aðila:

10. bekk Háteigsskóla, unglingahóp Hjálpræðishersins á Akureyri, kammerkórinn Schola cantorum og hóp á vegum Tækniminjasafns Austurlands.

Reykjavík 16. maí 2003



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum