Fréttasafn

Kveðjur til forsætisráðherra

18.8.2004

Forsætisráðherra heilsast vel og bati hans hefur verið í samræmi við væntingar lækna.

Að undanförnu hafa forsætisráðherra borist fjölmargar kveðjur frá erlendum þjóðarleiðtogum og stjórnmálamönnum. Meðal annars hafa forsætisráðherrar Norðurlanda allir sent kveðju sína. Þá hefur Tony Blair forsætisráðherra Bretlands sent forsætisráðherra bréf og í gær barst honum bréf frá George W. Bush forseta Bandaríkjanna með óskum um góðan bata. Þá hafa borist kveðjur frá Adrian Nastase forsætisráðherra Rúmeníu og Wesley Clark hershöfðingja og fyrrum yfirmanni herafla Atlantshafsbandalagsins í Evrópu. Einnig hefur forseti Slóveníu tvívegis hringt til forsætisráðherra og í dag átti hann símtal við Colin Powell utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

 

                                                                                                  Í Reykjavík, 18. ágúst 2004.



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica