Fréttasafn

Illugi Gunnarsson skipaður í framkvæmdanefnd um einkavæðingu

8.10.2004

Forsætisráðherra hefur skipað Illuga Gunnarsson aðstoðarmann utanríkisráðherra í framkvæmdanefnd um einkavæðingu samkvæmt tilnefningu utanríkisráðherra. Illugi tekur sæti Ólafs Davíðssonar ráðuneytisstjóra sem hefur að eigin ósk verið veitt lausn frá störfum í nefndinni.

Ólafi Davíðssyni eru færðar þakkir fyrir störf sín í framkvæmdanefndinni en hann hefur verið formaður nefndarinnar frá í febrúar 2002.

                                                                                                                  Í Reykjavík, 8. október 2004.



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica