Fréttasafn

Upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytis ráðinn

18.11.2004

Steingrímur Ólafsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneytinu. Steingrímur nam fjölmiðlafræði við blaðamannaháskólann í Osló og hefur starfað um árabil við blaða- og fréttamennsku. Hann hefur að undanförnu starfað sem kynningarstjóri Fróða.

Steingrímur Ólafsson er fæddur í Reykjavík árið 1965. Maki hans er Kristjana Sif Bjarnadóttir og eiga þau þrjú börn.

Í Reykjavík, 18. nóvember 2004.



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica