Hoppa yfir valmynd
26. maí 2005 Forsætisráðuneytið

Úthlutun úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna 2005

Úthlutað hefur verið styrkjum þessa árs úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Norska Stórþingið samþykkti í tilefni ellefu alda afmælis Íslandsbyggðar 1974 að færa Íslendingum eina milljón norskra króna að gjöf í ferðasjóð. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal ráðstöfunarfénu, vaxtatekjum af höfuðstól, varið til að styrkja hópferðir Íslendinga til Noregs.

Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum 1976 og fór nú fram tuttugasta og áttunda úthlutun. Ráðstöfunarfé sjóðsins var að þessu sinni um 600 þúsund krónur. Styrkumsóknir voru 14, en samþykkt var að styrkja eftirtalda aðila:
Skólahljómsveit Kópavogs, 9. og 10. bekk Höfðaskóla á Skagaströnd, Skíðadeild Víkings og samtökin Landsbyggðin lifir.

Í Reykjavík, 26. maí 2005.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum