Fréttasafn

Fyrsti samráðsfundur um efnahagsmál haldinn í dag

5.7.2007

Fyrsti fundur aðila að samráðsvettvangi um efnahagsmál var haldinn í dag kl.16:00 í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Forsætisráðherra stýrði fundinum en auk hans sátu fundinn utanríkisráðherra, fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og fulltrúar frá Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, BSRB og BHM. Rætt var um tilhögun samráðsins, almennar efnahagshorfur, aflasamdrátt og mótvægisaðgerðir, málefni Íbúðalánasjóðs og komandi kjarasamninga.

Reykjavík 5. júlí 2007



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica