Fréttasafn

Opinber heimsókn forsætisráðherra til Írlands

12.9.2007

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fer í opinbera heimsókn til Írlands dagana 12. – 14. september n.k. Þar mun hann eiga fundi með Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, Michéal Martin, viðskiptaráðherra, og Brian Lenihan, dómsmálaráðherra, auk þess sem hann hittir Mary McAleese, forseta Írlands.

Forsætisráðherra mun heimsækja fyrirtækin Hibernia Atlantic, Industria og Merrion Capital Group, sem eru í íslenskri eigu, og kynna sér starfsemi International Financial Services Centre og Forfás sem er stefnumótunar- og ráðgjafarvettvangur stjórnvalda á sviði viðskipta og vísinda.

Reykjavík, 12. september 2007



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica