Fréttasafn

Opinber heimsókn forsætisráðherra til Svartfjallalands

17.9.2007

  • Myndin er tekin á fundi forsætisráðherra Íslands og Svartfjallalands, Geirs H. Haarde og Zeljkos Sturanovic i Podgorica.
    Myndin er tekin á fundi forsætisráðherra Íslands og Svartfjallalands, Geirs H. Haarde og Zeljkos Sturanovic i Podgorica

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fer í opinbera heimsókn til Svartfjallalands dagana 17. - 19. september n.k. Þar mun hann m.a. eiga fundi með Filip Vujanovic, forseta landsins, Zeljko Sturanovic, forsætisráðherra, Milan Rocen, utanríkisráðherra, og Ranko Krivokapic, forseta þjóðþingsins.

Ísland viðurkenndi fyrst ríkja sjálfstæði Svartfjallalands 8. júní 2006 og stofnað var til stjórnmálasambands 26. september 2006.

Nánari upplýsingar veitir Gréta Ingþórsdóttir í s. 660 4960

Reykjavík 17. september 2007



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica