Fréttasafn

Skipan í orðunefnd

16.11.2007

Forseti Íslands hefur að tillögu forsætisráðherra skipað þau Ólaf Egilsson, fv. sendiherra, Rakel Olsen, framkvæmdastjóra og Þórunni Sigurðardóttur, listrænan stjórnanda í orðunefnd til næstu 6 ára í samræmi við forsetabréf nr. 145/2005 um hina íslensku fálkaorðu. Jafnframt láta af störfum í orðunefnd þau Guðný Guðmundsdóttir, konsertmeistari, Jón Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri og Sigmundur Guðbjarnason, fv. háskólarektor.

Reykjavík 16. nóvember 2007



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica