Hoppa yfir valmynd
24. október 2008 Forsætisráðuneytið

Samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn - mikilvægt skref í rétta átt

Ríkisstjórnin hefur formlega óskað eftir samstarfi við Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn um að koma á efnahagslegum stöðugleika á Íslandi. Viðræður á milli fulltrúa Íslands og sjóðsins um fyrirkomulag samstarfsins hafa staðið yfir um nokkurt skeið. Unnin hefur verið ítarleg efna­hagsáætlun í samráði við fulltrúa sjóðsins með það að markmiði að koma á efna­hags­legum stöðugleika á nýju. Fyrir liggur samkomulag á milli íslenskra stjórnvalda og sendi­nefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem verður borið undir stjórn sjóðsins til endanlegrar af­greiðslu eins fljótt og auðið er.

Íslenska ríkisstjórnin telur það vera brýnasta verkefni líðandi stundar að koma á efna­hags­legum stöðugleika hér á landi og ná tökum á gengi krónunnar. Sviptingar síðustu vikna hafa gert það að verkum að skilvirkni fjármálamarkaða hefur tímabundið skaddast þótt staða ríkis­sjóðs sé sterk. Af þeim sökum er mikilvægt fyrir íslenska ríkið að hafa til reiðu stóran sjóð í erlendri mynt til þess að mynda kjölfestu og trúverðugleika fyrir gengisstefnu stjórnvalda og bregðast við óhóflegum sveiflum á gengi krónunnar.

Meginmarkmið efnahagsáætlunar ríkisstjórnarinnar eru:

 

  1. Að endurvekja traust á íslenskum efnahag og ná stöðugu gengi krónunnar með mark­viss­um og öflugum aðgerðum.
  2. Að undirbúa markvissar aðgerðir til að styrkja stöðu ríkissjóðs.
  3. Að endurreisa íslenskt bankakerfi.

 

Samstarf Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins felur í sér lánveitingu frá sjóðnum að jafnvirði 2 milljarðar bandaríkjadala og koma 830 milljónir af þeirri fjárhæð til greiðslu, þegar við staðfestingu stjórnar sjóðsins. Jafnframt eru íslensk stjórnvöld fullviss um að samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn muni skapa forsendur fyrir frekari lánafyrirgreiðslu frá öðrum löndum.

 

Reykjavík 24. október 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum