Hoppa yfir valmynd
10. maí 2009 Forsætisráðuneytið

100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar gerð opinber

Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, þau Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrimur J. Sigfússon fjármálaráðherra, kynntu á blaðamannafundi í dag þau áform sem ríkisstjórnin hefur uppi og hyggst ljúka á næstu 100 dögum. Listinn er fjölbreyttur og tekur til margra málaflokka meðal annars er varða ríkisfjármálin og bankamálin en einnig mál er varða hag heimila og fyrirtækja.

Listann í heild má finna hér:

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs

100 daga áætlun – áformaðar aðgerðir

  • Forsendur fjárlaga 2010 og áætlun í ríkisfjármálum til millilangs tíma afgreidd í ríkisstjórn.
  • Skýrsla vegna áætlunar í ríkisfjármálum 2009 og áætlun til millilangs tíma lögð fram á Alþingi.
  • Ákvörðun um eigendastefnu og eignarhald bankanna tekin í ríkisstjórn.
  • Endurmat á aðgerðaráætlun vegna skuldavanda heimilanna.
  • Átak í kynningu og efldri þjónustu vegna greiðsluvandaúrræða fyrir heimili í skuldavanda.
  • Þingsályktunartillaga vegna umsóknar Íslands um ESB lögð fram á Alþingi.
  • Endurskoðun hafin á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
  • Frumvarp um handfæraveiðar smábáta yfir sumartímann lagt fram á Alþingi.
  • Lokið skal mikilvægum samningum til lausnar vegna erlendra eigenda krónubréfa.
  • Lokavinna við samninga um erlendar kröfur – Icesave.
  • Lokavinna við samninga um erlend lán við vinaþjóðir.
  • Ná samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins um stöðugleikasáttmála.
  • Frumvarp lagt fram á Alþingi um aðgerðir gegn skattundanskotum.
  • Fyrsta úttekt AGS vegna efnahagsáætlunarinnar afgreidd í stjórn AGS.
  • Ákvörðun tekin um framtíðareignarhald nýju bankanna og mögulegt erlent eignarhald.
  • Samkomulag milli nýju bankanna og erlendra kröfuhafa gömlu bankanna afgreitt.
  • Dregið úr gjaldeyrishöftum.
  • Frumvarp um persónukjör lagt fram á Alþingi.
  • Frumvarp lagt fram á Alþingi um ráðgefandi stjórnlagaþing sem kosið verði til samhliða sveitarstjórnarkosningum 2010.
  • Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslur lagt fram á Alþingi.
  • Endurskoðun á reglum um fjármál stjórnmálaflokka hafin.
  • Endurskoðun hafin á upplýsingalögum í því augnamiði að auka aðgengi almennings og fjölmiðla að upplýsingum stjórnarráðsins.
  • Frumvarp um eignaumsýslufélag lagt fram á Alþingi.
  • Frumvarp um breytingu á lögum um sparisjóði lagt fram á Alþingi.
  • Gripið til viðeigandi aðgerða til að lækka hæstu laun hjá ríkinu og félögum á þess vegum með það að leiðarljósi að enginn verði með hærri laun en forsætisráðherra.
  • Frumvarp um breytingar á Stjórnarráði Íslands lagt fram á Alþingi.
  • Frumvarp lagt fram á Alþingi um að breyta lögum um LÍN þannig að ekki verði lengur krafist ábyrgðarmanna.
  • Nýjar reglur um nefndarþóknanir, risnu og ferðakostnað samþykktar af ríkisstjórn.
  • Ný yfirstjórn ráðin í Seðlabanka Íslands.
  • Lokið við efnahagsreikninga nýju bankanna og þeir endurfjármagnaðir.
  • Lokið við endurfjármögnun og –skipulagningu sparisjóða sem óskað hafa eftir stofnfjárframlagi frá ríkinu.
  • Samráðsvettvangur ríkisstjórnar, sveitarfélaga, landbúnaðarins og aðila vinnumarkaðarins settur á fót.
  • Byrjað verði að móta atvinnustefnu í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og háskólasamfélagsins. Meðal markmiða sé að Ísland verði meðal 10 samkeppnishæfustu landa heims árið 2020.
  • Viðræður hafnar við lífeyrissjóði og innlenda fjárfesta um að koma að eflingu atvinnulífs með hinu opinbera.
  • Tillögur að nýju almannatryggingakerfi lagðar fyrir ríkisstjórn.
  • Nýjar útlánareglur afgreiddar hjá LÍN.
  • Hafin vinna við mótun heildstæðrar orkustefnu. Stefnan miði m.a. að því að endurnýjanlegir orkugjafar leysi innflutta orku af hólmi.
  • Sett á fót tekjustofnanefnd sem hafi það hlutverk að vinna tillögu um breikkun og styrkingu tekjustofna sveitarfélaga.
  • Náttúruverndaráætlun til ársins 2013 lögð fram á Alþingi.
  • Ráðgefandi hópur útgerðarmanna og sjómanna um veiðiráðgjöf og nýtingu sjávarauðlinda og ástands lífríkis sjávar skipaður.
  • Vinna hafin við mótun sóknaráætlana fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til framtíðar.
  • Vinna hafin við mótun menningarstefnu til framtíðar í samráði við listamenn.
  • Efld úrræði Vinnumálastofnunar og Nýsköpunarmiðstöðvar til að bregðast við atvinnuleysi.
  • Frumvarp um bætt umhverfi sprota og nýsköpunarfyrirtækja lagt fram á Alþingi.
  • Átak til að fjölga sumarstörfum og nýjum atvinnutækifærum fyrir ungt fólk.
  • Sparnaðarátak í ríkiskerfinu með þátttöku starfsmanna, stjórnenda og notenda þjónustunnar sett í gang.
  • Vinna hafin við gerð yfirlits um stöðu og þróun lykilstærða í samfélags- og efnahagsmálum þjóðarinnar og framtíðarvalkosti. 
  • Stöður bankastjóra ríkisbankanna auglýstar lausar til umsóknar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum