Fréttasafn

Áfangaskýrsla nefndar um endurskoðun á lögum um Stjórnarráð Íslands

15.6.2010

Nefnd um endurskoðun á lögum um Stjórnarráð Íslands hefur skilað áfangaskýrslu. Þar eru settar fram ýmsar tillögur er lúta að innri starfsháttum Stjórnarráðsins og leiðum til þess að bæta og styrkja mannauðs- og þekkingarstjórnun innan þess. Þá er markmiðið að skýra og styrkja hlutverk faglegrar stjórnsýslu annars vegar og pólitískrar yfirstjórnar hins vegar. Í síðari skýrslu nefndarinnar verður fjallað um starfshætti ríkisstjórnar, samvinnu milli ráðuneyta og samskipti ráðuneyta og ríkisstofnana.

Tillögurnar í áfangaskýrslunni eru nú til umfjöllunar á vettvangi forsætisráðuneytisins, ríkisstjórnarinnar og ráðuneytanna. Ennfremur er almenningur hvattur til að senda forsætisráðuneytinu athugasemdir við skýrsluna fyrir 15. ágúst næstkomandi á netfang ráðuneytisins: postur@for.stjr.is.

Stefnt er að því að leggja fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands á haustþingi 2010.

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica