Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2010 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin samþykkir 67 millj. kr. framlag vegna verkefna á gossvæðinu við Eyjafjallajökul og alls hefur því verið veitt 867,7 millj. kr. til verkefna á svæðinu.

 Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun 67 milljóna króna framlag til verkefna í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi. 27 milljónir króna verða veittar til greiðslu kostnaðar við átaksverkefni á gossvæðinu þar sem einstaklingar voru ráðnir af atvinnuleysisskrá til ýmissa verkefna og 12 milljónum króna verður varið til að mæta kostnaði við viðgerðir á varnargörðum í Markarfljóti. Þá var samþykkt að veita 17 milljónum króna til þess að endurbæta bæjarhlöð og heimreiðar, en í kjölfar öskufalls var ráðist í að skafa ösku af öllum bæjarhlöðum á þeim hluta svæðisins sem verst varð úti en með því fór efsta lagið víða af hlöðum. Jafnframt verður 11 milljónum veitt til Veðurstofunnar vegna sérfræðivinnu sem innt var af hendi í gosinu auk þess sem ríkisstjórnin hefur farið þess á leit að Veðurstofan vinni nú mat á hættu á eðjuflóðum, aurskriðum og framburði gosefna niður á láglendi.

Fyrr á árinu samþykkt ríkisstjórnin 800.7 milljóna króna framlag vegna ýmissa þátta og viðbragða í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi. Með þessari samþykkt á 67 m.kr. framlagi til viðbótar eru heildarframlög úr ríkissjóði á árinu 2010 orðin 867,7 m.kr. Heildarkostnaðarmat vegna tjóns af völdum eldgosa í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi liggur ekki endanlega fyrir þar og ennþá er að koma fram kostnaður vegna neyðarviðbragða og aðgerða og ýmissa afleiðinga eldgosanna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum