Hoppa yfir valmynd
22. mars 2011 Forsætisráðuneytið

Siðareglur ráðherra samþykktar í ríkisstjórn

Forsætisráðherra gaf í dag út siðareglur fyrir ráðherra ríkisstjórnarinnar. Í reglunum er meðal annars fjallað um hagsmunatengsl og hagsmunaárekstra, fjármál og launagreiðslur, háttsemi og framgöngu, samskipti ráðherra við starfslið ráðuneytis og upplýsingagjöf til almennings.

Reglurnar sem gefnar voru út í dag eru fyrstu siðareglurnar sem settar eru á grundvelli laga nr. 86/2010 um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands og fleiri lögum (siðareglur). Hafinn er undirbúningur að setningu siðareglna fyrir starfsmenn ráðuneytanna.

Samkvæmt lögum nr. 86/2010 skal forsætisráðherra skipa samhæfingarnefnd um siðferðileg viðmið fyrir stjórnsýsluna. Nefndin er ráðgefandi fyrir stjórnvöld og mun hún leiða vinnu við undirbúning siðareglna fyrir mismunandi hópa ríkisstarfsmanna og innleiðingu þeirra. Í nefndinni eiga sæti Jón Ólafsson prófessor, formaður, Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu og Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, skipuð án tilnefningar, Halldóra Friðjónsdóttir, starfsmaður starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, samkvæmt tilnefningu fjármálaráðherra, Magnús Pétursson ríkissáttasemjari, samkvæmt tilnefningu Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur hjá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), og Guðfinna Halla Þorvaldsdóttir, framkæmdastjóri Sálfræðingafélagsins, samkvæmt tilnefningu BSRB, Kennarasambands Íslands og Bandalags háskólamanna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum