Fréttasafn

Forsætisráðherra fundar með Kuupik Kleist formanni landsstjórnar Grænlands

5.9.2011

  • Kuupik Kleist formaður landsstjórnar Grænlands og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
    Kuupik Kleist formaður landsstjórnar Grænlands og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra

Forsætisráðherra og Kuupik Kleist, formaður landsstjórnar Grænlands, funduðu í dag á Þingvöllum.  Ræddu þau meðal annars tvíhliða samskipti Grænlands og Íslands, þróun sjálfstæðismála á Grænlandi, efnahagsmál, aðildarviðræður Íslands við ESB og samstarf Grænlands við ESB.

Forsætisráðherrahjónin buðu til hádegisverðar í Þingvallabænum, til heiðurs formanni landsstjórnar Grænlands.

 

Senda grein