Fréttasafn

Heimsókn þingforseta Svartfjallalands lokið

27.1.2012

  • Þingforseti Svartfjallalands í heimsókn
    Þingforseti Svartfjallalands í heimsókn í forsætisráðuneytinu
    Ranco Krivokapic og Jóhanna Sigurðardóttir

Forseti þjóðþings Svartfjallalands, Ranco Krivokapic, heimsótti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á lokadegi opinberrar heimsóknar sinnar hingað til lands, 26. janúar síðastliðinn.  Á fundi sínum ræddu þau um efnahagsmál, stöðuna á evrusvæðinu, umsóknarferli ríkjanna vegna aðildar að Evrópusambandinu og samstarf Svartfjallalands við Atlantshafsbandalagið (NATO).

Ranko Krivokapic er jafnframt formaður jafnaðarmannaflokks Svartfjallalands, sem er annar ríkisstjórnarflokkanna þar í landi og hefur verið forseti þjóðþings landsins frá árinu 2006.

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica