Hoppa yfir valmynd
21. mars 2012 Forsætisráðuneytið

Fækkun ráðuneyta og breytt skipan

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu ráðherranefndar um stjórnkerfisumbætur varðandi breytingar á heitum og fjölda ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Tillagan er nú til umfjöllunar í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna.

Í samræmi við nýsamþykkt lög um Stjórnarráð Íslands verður lögð fram þingsályktunartillaga á Alþingi sem að þessu lýtur. Þar er lagt til í stað iðnaðarráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis,  efnahags- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis komi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Með þessari breytingu fækkar ráðuneytum út tíu í átta og er þar með stigið lokaskrefið í sameiningarferli ráðuneytanna í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna. Í upphafi kjörtímabilsins voru ráðuneytin 12 talsins. Stefnt er að því að ljúka umfangsmikilli sameiningu og verkefnatilfærslum milli ráðuneyta á næstu mánuðum þannig að breytingarnar taki gildi 1. september nk.

Með sameiningunni verða eftirfarandi breytingar.

Auk verkefna sem áður heyrðu undir sjávarútvegs- landbúnaðar- og iðnaðarráðuneytið er gert ráð fyrir að til nýs atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis færist verkefni sem tengjast fjármálamarkaði, almennum leikreglum atvinnulífsins og viðskiptamálum sem nú heyra undir efnahags- og viðskiptaráðuneytið. Með stofnun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis er stefnt að auknu jafnræði allra atvinnugreina og skilvirkri og einfaldri stjórnsýslu í þeirra þágu og almennings.

Í ljósi greiningarvinnu sem fram hefur farið þykir skynsamlegt og faglega rétt  að verkefni sem tengjast hagstjórn séu færð frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti til fjármálaráðuneytis og heiti þess breytt í fjármála- og efnahagsráðuneyti. Með þessari breytingu verða því öll meginverkefni á sviði hagstjórnar, ríkisfjármála, peningastefnu- og gjaldeyrismála á einum stað innan Stjórnarráðs Íslands. Sambærilegt fyrirkomulag er m.a. í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Írlandi og á Bretlandi.

Loks er með stofnun umhverfis- og auðlindaráðuneytis á grunni umhverfisráðuneytis er lögð áhersla á aukið hlutverk þess varðandi sjálfbæra nýtingu auðlinda í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið mun hlutast til um mótun og lögfestingu meginreglna umhverfisréttarins og skilgreiningu þeirra viðmiða sem gilda eiga um sjálfbæra nýtingu.

„Með þessum breytingum verður stigið stórt skref og jafnræði aukið í þjónustu Stjórnarráðsins við allar atvinnugreinar, einnig verslun og þjónustu, svo sem ferðaþjónustu, og hugverkagreinar,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. „Þá verður staða efnahagsmála innan Stjórnarráðsins styrkt enn frekar og til verða þrjú öflug ráðuneyti sem endurspegla breytingar sem orðið hafa og munu verða á samfélagi okkar og alþjóðaumhverfi.“

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum