Hoppa yfir valmynd
6. apríl 2013 Forsætisráðuneytið

Opinber heimsókn forsætisráðherra til Kína

Forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir og eiginkona hennar, Jónína Leósdóttir, verða í opinberri heimsókn í Kína 15.-18. apríl næstkomandi. Boði kínverskra stjórnvalda um heimsóknina var komið á framfæri af þáverandi forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, í opinberri heimsókn hans til Íslands í apríl á síðasta ári. Forsætisráðherra mun eiga fund með forsætisráðherra Kína, Li Keqiang og forseta Kína, Xi Jinping, en þeir tóku formlega við embættum í mars s.l. Ennfremur mun forsætisráðherra eiga fund með fyrrverandi forsætisráðherra, Wen Jiabao.

Í tengslum við heimsókn forsætisráðherra verður undirritaður fríverslunarsamningur á milli Íslands og Kína, en unnið hefur verið að honum um sex ára skeið og sammæltust forsætisráðherrar Íslands og Kína um það í apríl 2012 að setja aukinn kraft í að ljúka þeim viðræðum þannig að hægt væri að undirrita hann innan árs.

Samningurinn verður undirritaður af utanríkisráðherra, ásamt utanríkisviðskiptaráðherra Kína.  Jafnframt verður haldið viðskiptaþing í Peking þann 16. apríl með þátttöku fulltrúa íslenskra og kínverskra fyrirtækja og stofnana, þar sem tækifæri í tengslum við fríverslunarsamning ríkjanna verða rædd.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum