Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2014 Forsætisráðuneytið

Viðskiptatækifæri á norðurslóðum

 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hélt í morgun opnunarerindi á morgunverðarfundi um viðskiptatækifæri á norðurslóðum á hótel Reykjavík Natura. Norðurslóðaviðskiptaráðið og PwC stóðu að fundinum og meðal annarra ræðumanna var dr. Michael Byers, prófessor í alþjóðalögum og stjórnmálum og sérfræðingur í málefnum norðurslóða. 

Í erindi sínu fjallaði forsætisráðherra um þróunina á norðurslóðum og þau efnahagslegu tækifæri sem Ísland stæði frammi fyrir samhliða auknum möguleikum til auðlindanýtingar og opnun siglingaleiða. Nefndi ráðherra meðal annars olíuleit á Drekasvæðinu og uppbyggingu þjónustu á Íslandi, ekki síst gagnvart hafnsækinni starfsemi. Ráðherra ræddi einnig mikilvægi sjálfbærrar þróunar á norðurslóðum og sérstöðu Íslands er lýtur að endurnýjanlegum orkugjöfum. 

Forsætisráðherra fjallaði jafnframt um þær áskoranir sem fylgdu auknum efnahagslegum umsvifum á norðurslóðum, ekki síst að því er varðar umhverfis- og öryggismál.  Þá áréttaði ráðherra mikilvægi heildstæðrar stefnu í málefnum norðurslóða og greindi frá starfi nýskipaðrar Ráðherranefndar um málefni norðurslóða í því sambandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum