Hoppa yfir valmynd
20. mars 2014 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin styrkir afmælishátíð Hallgríms Péturssonar 

Hallgrímur Pétursson
Hallgrímur Pétursson

Ríkisstjórnin hefur, að tillögu forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra, ákveðið að veita allt að 6 milljónum króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu vegna viðburða 2014 og 2015 til að minnast þess að fjórar aldir eru liðnar frá fæðingu Hallgríms Péturssonar prests og sálmaskálds. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu hefur verið falin umsjón með verkefninu í heild sinni og ráðstöfun framlagsins í samráði við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Landsbókasafn Íslands- Háskólabókasafn, Biskup Íslands og hlutaðeigandi stofnanir og félög. 

Fæðingarafmælis Hallgríms verður minnst með margvíslegum hætti. Meðal annars með ráðstefnum, sýningum, viðburðum og útgáfu rita. Þar á meðal verður fræðileg útgáfa á verkum Hallgríms og útgáfa ætluð almenningi. Unnið hefur verið að undirbúningi hátíðahaldanna í samráði við  Biskup Íslands, Hallgrímskirkju, Listvinafélag Hallgrímskirkju, Guðbrandsstofnun á Hólum, Þjóðminjasafn Íslands og fleiri. Auk þessa fyrirhugar Minjastofnun Íslands að leggja til við forsætisráðherra friðlýsingu Hallgrímskirkju í Saurbæ  á Hvalfjarðarströnd. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum