Hoppa yfir valmynd
23. júlí 2014 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra Ísraels sent bréf vegna ástandsins á Gaza

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sendi í dag forsætisráðherra Ísraels bréf þar sem komið er á framfæri alvarlegum áhyggjum af stöðu mála á Gaza hvar mikill fjöldi óbreyttra borgara hefur látið lífið að undanförnu. Í bréfinu fordæmir forsætisráðherra árásir og ofbeldi á báða bóga og kallar eftir tafarlausu vopnahléi svo hægt sé að koma nauðstöddum til hjálpar og finna friðsamlegar leiðir til lausnar deilunni. Kemur einnig fram að réttur Ísraels til sjálfsvarnar sé viðurkenndur í samræmi við alþjóðalög.

Í bréfinu kallar forsætisráðherra eftir því að Ísrael axli sína ábyrgð á stöðu mála og láti þegar af hernaðaraðgerðum sínum á Gaza sem séu gríðarlega umfangsmiklar og veki alvarlegar spurningar í ljósi alþjóðlegra skuldbindinga og mannúðarsjónarmiða. Segir forsætisráðherra að hernaðaraðgerðir séu síst til þess fallnar að varanleg lausn náist í deilunni fyrir botni Miðjarðarhafs.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum