Hoppa yfir valmynd
28. nóvember 2014 Forsætisráðuneytið

Jólastyrkur til góðgerðarsamtaka

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun, að tillögu forsætisráðherra, að veita samtals 8. millj. kr. styrk í tilefni jóla til tíu góðgerðasamtaka sem starfa hér á landi. 

Lagt er til að veitt verða af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til tíu góðgerðasamtaka hér á landi sem skiptist þannig: Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Akraness og Hjálpræðisherinn á Íslandi fái 700.000 krónur hver. Samtals: 3.500. þús. kr. Hjálparstarf kirkjunnar, Samhjálp-félagasamtök, Rauði kross Íslands og Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur fái 900.000 þúsund krónur hver. Samtals: 4.500. þús. kr.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum