Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2015 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundaði með forvígismönnum Evrópusambandsins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Donald Tusk forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Donald Tusk forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins

Á fundum sínum með forvígismönnum Evrópusambandsins lagði forsætisráðherra áherslu á að horfa fram á við í samskiptum Íslands og ESB. „Ríki Evrópusambandsins eru okkar mikilvægustu viðskiptaaðilar og nánar vinaþjóðir. Að Ísland sé ekki lengur umsóknarríki breytir engu þar um. Ég átti mjög góða fundi með forvígismönnum Evrópusambandsins sem hafa góðan skilning á afstöðu íslenskra stjórnvalda og virða að fullu þær ákvarðanir sem þar hafa verið teknar. Við vorum sammála um að horfa til framtíðar og leggja áherslu á framkvæmd EES samningsins, sem reynst hefur samningsaðilum farsællega í rúm 20 ár. Við vorum einnig sammála um að þróa samstarf á öðrum sviðum, til dæmis á sviðum jarðhita, fiskveiðimála og norðurslóða þar sem Ísland hefur mikilsverða sérþekkingu fram að færa. Samskipti Íslands og Evrópusambandsins eru því mjög góð og standa á traustum grunni. Við ræddum einnig efnahagsmálin á Íslandi og áætlun um afnám hafta sem horft er mjög til hér í Evrópu. Svo ræddum við vitanlega stöðu mála í Evrópu, sem óhjákvæmilega snýr að Grikklandi þessi misserin. Þar er uppi mjög snúin staða sem við vonum að leysist farsællega, enda mikilvægt fyrir alla þróun í Evrópu“, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Heimsókn forsætisráðherra til Brussel lýkur í dag, en ráðherrann kynnti sér einnig starfsemi Eftirlitsstofnunar EFTA í ferðinni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum