Hoppa yfir valmynd
28. ágúst 2015 Forsætisráðuneytið

Viðbragðshópur vegna ástandsins í Fjallabyggð kallaður saman

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hefur óskað eftir því að kallaður verði saman hópur ráðuneytisstjóra og fulltrúa viðeigandi stofnanna til að fara yfir þá stöðu sem skapast hefur á Siglufirði og í Ólafsfirði vegna óvenju mikillar rigningar undanfarna daga. Þær hafa meðal annars valdið vatns- og aurflóðum á svæðinu. Hópnum er ætlað að meta hvernig bregðast megi við, meðal annars í samráði við bæjaryfirvöld í Fjallabyggð.

,,Þarna hafa átt sér stað mjög óvenjulegir atburðir. Nauðsynlegt er að bregðast skjótt við, fara yfir stöðuna með okkar lykilstofnunum og meta hugsanleg viðbrögð. Það munum við gera í góðri samvinnu við heimamenn," sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum