Hoppa yfir valmynd
1. september 2015 Forsætisráðuneytið

Ráðherranefnd um málefni flóttafólks og innflytjenda sett á laggirnar

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra,  að sett verði á fót ráðherranefnd um málefni flóttafólks og innflytjenda. Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, innanríkisráðherra og utanríkisráðherra munu eiga fast sæti í nefndinni. Þá munu mennta- og menningarmálaráðherra og heilbrigðisráðherra taki sæti í nefndinni þegar fjallað er sérstaklega um málefni á þeirra ábyrgðarsviðum. Aðrir ráðherrar taka sæti á fundum nefndarinnar eftir því sem tilefni er til.

Nefndin mun taka til umfjöllunar stöðu mála, stefnumörkun og stjórnvaldsákvarðanir í málefnum flóttafólks, hælisleitenda og innflytjenda. Markmiðið er að samræma starf ráðuneyta og stofnana í umræddum málaflokkum og meta hvernig framlag Íslands nýtist best til að ná markmiðum um mannúðaraðstoð og aðstoð við flóttamenn, hælisleitendur og innflytjendur og samfélagsmál tengd málaflokknum.

Fyrir liggur að málefni flóttamanna og hælisleitenda er og verður viðvarandi verkefni hér á landi sem og hjá fjölda annarra þjóða. Þá varðar málefnið mörg ráðuneyti og stofnanir, auk sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka. Mikilvægt er að standa vörð um það vandaða fyrirkomulag sem byggt hefur verið upp hér á landi við móttöku kvótaflóttamanna og jafnframt að samþætta það fyrirkomulag annars vegar og umgjörð hælisleitenda hins vegar. Þá er mikilvægt að jafnframt verði metnir möguleikar Íslands til þess að auka aðkomu sína að starfi stofnana SÞ og borgarasamtaka sem starfa á sviði neyðar- og mannúðaraðstoðar á vettvangi og samstarf við önnur ríki, t.d. Norðurlöndin, á sviði neyðar- og mannúðaraðstoðar.

Íslensk stjórnvöld hafa undanfarið haft til umfjöllunar málefni flóttafólks og hælisleitenda og m.a. unnið að undirbúningi móttöku kvótaflóttamanna og bættri umgjörð hælisleitenda. Það er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, þar sem undirstrikað er að staðið verði að neyðar- og mannúðaraðstoð við bágstaddar þjóðir. Samkvæmt áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands til ársins 2016 miðar neyðar- og mannúðaraðstoð Íslands að því að bjarga mannslífum og draga úr þjáningu þar sem neyðarástand hefur skapast.

„Það var mikil og góð umræða um þetta mikilvæga málefni í ríkisstjórninni í morgun og ljóst að um er að ræða mál sem ráðherrar og ríkisstjórnin í heild tekur mjög alvarlega. Vandinn er ekki nýtilkominn og við fjölluðum um þá miklu vinnu sem ráðuneyti og stofnanir hafa unnið á þessu sviði á síðustu misserum. Vinna við undirbúning fyrsta fundar ráðherranefndarinnar er hafin og ég gerir ráð fyrir að hægt verði að boða til fyrsta fundarins í þessari viku. Við ætlum okkur að vinna hratt og vel að því að kortleggja þróunina að undanförnu svo okkur verði kleift að bregðast sem best við þessum mikla vanda.“, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum