Forsætisráðuneyti

Valmynd.


Skrifstofan er flutt

Norðurlandaskrifstofa er frá og með 1. október 2009 með aðsetur í utanríkisráðuneytinu að Rauðarárstíg 25, sími: 545 9900, netfang: postur@utn.stjr.is.

Allar upplýsingar sem hér var að finna og varða norrænt samstarf eru komnar á vef utanríkisráðuneytisins

Athugið að þær upplýsingar sem eru hér geta verið úreltar og því rétt að kynna sér málið á vef utanríkisráðuneytisins.

Hlutverk og inntak norrænnar samvinnu

Norrænt samstarf

Norrrænu ríkin fimm, Danmörk, Finnland, Noregur, Ísland og Finnland og sjálfsstjórnarsvæðin þrjú Grænland, Færeyjar og Álandseyjar vinna saman og standa vörð um sameiginlega hagsmuni. Samvinna þeirra byggir á sameiginlegu gildismati þjóðanna sem byggja þessi lönd.

Norræn samvinna styrkir og dregur fram sameiginleg hagsmunamál Norðurlanda, eykur aðdráttarafl þeirra og Norður-Evrópu og eflir áhrif landanna í Evrópusambandinu og á alþjóðlegum vettvangi.

Norræna ráðherranefndin er vettvangur ríkisstjórnasamstarfs landanna. Hún á að tryggja að samstarf sé á þeim sviðum þar sem það gerir mest gagn. Samvinna við grannríki Norðurlanda er mikilvægt verkefni og sama gildir um allt samstarf sem eflir áhrif landanna í Evrópu. Ráðherranefndin vinnur beint að málum þar sem löndin sjálf, aðrar alþjóðlegar stofnanir eða aðrir aðilar geta ekki náð eins góðum árangri.
 
Inntak norrænnar samvinnu

  • Að standa vörð um sameiginlega hagsmuni  
    Saga og menning Norðurlanda á sér djúpar og sameiginlegar rætur. Hinn samnorræni arfur gagnast samvinnu þjóðanna afar vel.
  • Gildismat  
    Norræn samvinna byggir á sameiginlegum gildum, eins og opinskárri umræðuhefð og umburðarlyndi, og á sameiginlegum hagsmunum þjóðanna. Sameiginlegt gildismat tryggir samheldni þjóðanna í þeim mæli að slíks eru fá dæmi í heiminum. 
  • Norræn samvinna  
    Mikill fjöldi fólks tekur þátt í norrænu samstarfi, annað hvort sem einstaklingar eða í frjálsum félagasamtökum. Því fylgir mikill styrkur. Þessi breiða þátttaka helst í hendur við að samstarf þjóðanna hefur mikinn hljómgrunn meðal almennings.
  • Styrkur  
    Margt tengir saman norrænu ríkin og fólkið sem þar býr. Samvinnan styrkir þau bönd mikið. Það kemur meðal annars fram í norrænu samstarfi á sviði menningar, menntamála og rannsókna, umhverfis-mála, í norræna velferðarkerfinu og aðgerðunum gegn stjórnsýslu-hindrunum.
  • Aðdráttarafl  
    Samvinna Norðurlanda og landanna við Eystrasalt og Rússland er mikilvæg leið til að auka aðdráttarafl og getu þeirra til að draga að sér erlent fjármagn. Sú orka sem felst í fjölbreytilegri reynslu þjóða á öllu þessu svæði kemur þeim að miklu gagni á hnattvæddum markaði.


Norræna ráðherranefndin  
Ríkisstjórnir norrænu ríkjanna fimm og stjórnir sjálfstjórnarríkjanna þriggja vinna saman formlega og óformlega. Ráðherranefndin er hinn opinberi vettvangur þess samstarfs.

Ráðherranefndinni er ætlað að efla samvinnuna, í hverju sem hún felst. Stöðugt er verið að leita hagkvæmustu leiða til að ná árangri, hið ytra form skiptir minna máli. Starf ráðherranefndarinnar tekur mið af vel afmörkuðum forgangssviðum og kröfunni um að fjármunum sé vel varið. Allt sem ráðherranefndin gerir á að koma öllum Norðurlandabúum að gagni.

Nágrannar Norðurlanda   
Aukin samskipti við grannþjóðirnar er til gagns fyrir Norðurlandabúa. Það kemur greinilega í ljós í norrænu samstarfi við Norður-Atlantshafið, á norðurskautssvæðinu og í samstarfi við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland. Á vettvangi Evrópusambandsins gefast möguleikar á að lönd stofni til innbyrðis samstarfs. Norræn og norræn-baltnesk samvinna styrkir stöðu þessara landa innan vébanda ESB. Það á við um sameiginlega afstöðu til mála, en einnig um annars konar frumkvæði, t.d.  í mótun rannsóknar- og nýsköpunarstefnu. Norðlæga víddin  svokallaða er bæði grundvöllur fyrir og leið til að þróa áfram samvinnu milli ESB, Rússlands, Noregs og Íslands. Markmiðið er að auka velmegun í þeim hluta Evrópu sem við búum í, bæði með aukinni samvinnu á stjórnmálasviði og með markvissum aðgerðum. Með því móti er hægt að auka öryggi og tryggja sjálfbæra þróun.

Aðrar alþjóðlegar stofnanir  
Leggja þarf áherslu á samvinnu Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsráðið, Barentsráðið og Norðurskautsráðið – en að þeim standa að hluta til sömu stjórnvöld. Með samvinnu er átt við verkaskiptingu, þegar hún er hagkvæm.




Þú ert hér: Forsíða > Verkefni sem er lokið > Norðurlandaskrifstofa > Hlutverk og inntak norrænnar samvinnu

Aðalavalmynd í haus

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

Verkefni sem er lokið

  • Yfirlit yfir verkefni
  • Aðgerðir stjórnvalda
  • Endurreisn efnahagslífsins
  • Fréttir af aðgerðum og endurreisn
  • Áætlun um efnahagsstöðugleika
  • Nefnd um þróun Evrópumála
  • Opinberar eftirlitsreglur
  • Hönnunarsamkeppni
  • Einkavæðing
  • Norðurlandaskrifstofa
  • Upplýsingasamfélagið

Tungumál

  • English

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið


Upplýsingavefur forsætisráðuneytisins

  • Ráðuneytið
    • Skipurit
    • Starfsmenn
    • Laus störf
    • Stefna
    • Fjármál
    • Sögulegt yfirlit
    • Stjórnarráðshúsið
    • Merki ráðuneytis
    • Afgreiðsla
    • Stofnanir
  • Ráðherra
    • Um ráðherra
    • Ræður og greinar
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni
    • Starfssvið
    • Málefni ríkisstjórnarinnar
    • Ráðherranefndir
    • Ísland 2020
    • Lagasamræming
    • Umbætur í stjórnsýslu
    • Nefndir
    • Þjóðartákn og orður
    • Siðareglur
    • Sjá öll verkefni
  • Útgáfa
    • Fréttsafn
    • Skýrslur og annað útgefið efni
    • Stefnur
    • Myndasafn
    • Áskrift
  • Lög og reglugerðir
    • Lög og reglugerðir
    • Lög
    • Reglugerðir
    • Forsetaúrskurðir
  • Annað
    • Áskrift og RSS
    • Fyrirspurnarform
    • Fyrir fjölmiðla
    • Veftré
    • Um vefinn

Samskipti

| Forsætisráðuneytið | Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg | 150 Reykjavík (sjá kort) | Sími: 545 8400 | Bréfasími: 562 4014 | Kt.: 550169-1269 | Netfang: postur@for.stjr.is |
| Aðgengisstefna | Öryggi og persónuvernd | Fyrirvari | Vefstjóri |


Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar
Þetta vefsvæði byggir á Eplica