Auðlindir Norðurlanda
Auðlindir Norðurlanda
Stefna Íslendinga í norrænu samstarfi komin á Netið
Vefur um formennskuáætlun Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni hefur verið opnaður. Þar eru allar upplýsingar um helstu stefnumál í norrænu samstarfi á næsta ári, áætlanir sviða, verkefni, ráðstefnur og fundir.
Á formennskutímanum leggja Íslendingar megináherslu á að Vestur-Norðurlönd fái aukið vægi í norrænu samstarfi og að tekið verði upp samstarf við grannsvæði við Norður-Atlantshaf. Verndun hafsins og leiðir til að styrkja lýðræðið verða jafnframt í brennidepli. Yfirskrift verkefnaáætlunarinnar er Auðlindir Norðurlanda og eru leiðarstefin þrjú; lýðræði, menning og náttúra.
Formennskuvefurinn er á íslensku og dönsku. Vefslóðin á íslensku útgáfuna er www.raduneyti.is/formennska2004 og á þá dönsku www.government.is/NMR2004. Norðurlandaskrifstofa hefur umsjón með vefnum.

