Forsætisráðuneyti

Valmynd.


Skrifstofan er flutt

Norðurlandaskrifstofa er frá og með 1. október 2009 með aðsetur í utanríkisráðuneytinu að Rauðarárstíg 25, sími: 545 9900, netfang: postur@utn.stjr.is.

Allar upplýsingar sem hér var að finna og varða norrænt samstarf eru komnar á vef utanríkisráðuneytisins

Athugið að þær upplýsingar sem eru hér geta verið úreltar og því rétt að kynna sér málið á vef utanríkisráðuneytisins.

Fréttir

Fundur samstarfsráðherra 15. júní 1999 í Reykjavík

15.6.1999

Fréttatilkynning



Norðurlandaskrifstofa forsætisráðuneytis
Þriðjudagur 15. júní 1999

Samstarfsráðherrar Norðurlanda héldu í dag fund á Hótel Sögu undir stjórn Sivjar Friðleifsdóttur, umhverfis- og samstarfsráðherra.

Á fundinum voru norræn fjárlög fyrir árið 2000 samþykkt. Þau hljóða uppá 7,6 milljarða íslenskra króna. Vegna þeirrar óánægju sem norrænu menningarmálaráðherrarnir höfðu lýst yfir lækkuðum fjárvetingum til menningasamstarfsins var sá hluti norrænu fjárlaganna sem þeir hafa ráðstöfunarrétt yfir hækkaður um 10,5 millj. íslenskra króna.

Á fundinum var til umræðu skýrsla um evrópuþáttinn í störfum Norrænu ráðherranefndarinnar og af því tilefni gerði Siv Friðleifsdóttir, samstarfsráðherra grein fyrir því starfi sem unnið hefur verið til að koma á reglubundnum samskiptum milli norrænu fagráðherranefndanna og norrænu sendiráðanna í Brussel. Samstarfsráðherra Finna kynnti formennskuáætlun Finnlands hjá ESB en Finnland tekur við formennsku þar um mánaðarmótin júní/júlí.

Til að undirbúa norrænt samstarf undir þær áskoranir sem vænta má að mæta þurfi í samstarfinu á næstu öld skipuðu ráðherrarnir sérstaka nefnd, norrænu aldamótanefndina. Jón Sigurðsson, bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans verður formaður hennar og á hún að ljúka störfum í september árið 2000.

Í tilefni árþúsundamótanna var einnig ákveðið að efnt skyldi til norrænna hátíðartónleika. Þeir verða haldnir í Tívolí í Kaupmannahöfn í september árið 2000 og þar mun Orkester Norden leika undir stjórn Leifs Segerstam.

Jafnframt ræddu ráðherrarnir aukna samvinnu við frjáls félagasamtök á Norðurlöndum og hvernig leitast megi við að styrkja samvinnuna milli þeirra innbyrðis og styrkja samstarf þeirra við sambærileg samtök í Eystrasaltsríkjunum svo og milli þeirra og hins opinbera norræna samstarfs. Aukin samvinna við frjáls félagasamtök er nú meðal áherslumála í norrænu samstarfi.

Hugmyndir um að taka upp grannsvæðasamstarf við Skotland, Shetlandseyjar og norðvestur hluta Kanada voru ræddar að frumkvæði samstarfsráðherra Færeyja, Høgna Hoydal. Mörg áhugaverð svið eru til umræðu í þessu samhengi og má þar sem dæmi nefna verndun hafsins geng mengun og kjarnorkuúrgangi og náttúrvernd við erfið loftslagsskilyrði. Áfram verður unnið að þessari hugmyndi í nefnd þeirri sem Jón Sigurðsson, bankastjóri, veitir forstöðu.

Framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar gerði grein fyrir stöðuskýrslu um framkvæmd formennskuáætlunar Íslendinga í norrænu samstarfi, þegar fyrri helmingur formennskuárs er liðinn. Af hálfu Íslands var lýst ánægju með það starf sem þegar hefur verið unnið, en formennskuáætlunin tekur til allra þátta samstarfsins og þegar hefur verið hafist handa við mörg áherslumálanna.

Samstarfsráðherra Íslands kynnti fyrir samstarfsráðherrunum fyrirhugaða ráðstefnu um konur og lýðræði við upphaf nýrrar aldar sem haldin verður á Íslandi í haust og sem Norræna ráðherranefndin ásamt ríkisstjórn Íslands og Bandaríkjastjórnar standa að. Norræna ráðherranefndin mun taka þátt í að styrkja fulltrúa frá Eystrasaltsríkjunum og Rússlandi auk fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem taka þátt í ráðstefnunni.

Fundinn sátu:
auk Sivjar Friðleifsdóttur, umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Íslands,
Marianne Jelved, efnahagsmálaráðherra og samstarfsráðherra Danmerkur,
Jan Erik Enestam, varnarmálaráðherra og samstarfsráðherra Finnlands,
Peter Angelsen, sjávarútvegsráðherra og samstarfsráðherra Noregs,
Høgni Hoydal, varalögmaður og norrænn samstarfsráðherra, Færeyjum,
Jonathan Motzfeldt, landsstjórnarformaður og norrænn samstarfsráðherra, Grænlandi og Roger Janson, fulltrúi í landsstjórn og norrænn samstarfsráðherra, Álandseyjum.

Nánari upplýsingar: Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra og norænn samstarfsráðherra, í síma 896 3962.


Þú ert hér: Forsíða > Verkefni sem er lokið > Norðurlandaskrifstofa > Fréttir

Aðalavalmynd í haus

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

Verkefni sem er lokið

  • Yfirlit yfir verkefni
  • Aðgerðir stjórnvalda
  • Endurreisn efnahagslífsins
  • Fréttir af aðgerðum og endurreisn
  • Áætlun um efnahagsstöðugleika
  • Nefnd um þróun Evrópumála
  • Opinberar eftirlitsreglur
  • Hönnunarsamkeppni
  • Einkavæðing
  • Norðurlandaskrifstofa
  • Upplýsingasamfélagið

Tungumál

  • English

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið


Upplýsingavefur forsætisráðuneytisins

  • Ráðuneytið
    • Skipurit
    • Starfsmenn
    • Laus störf
    • Stefna
    • Fjármál
    • Sögulegt yfirlit
    • Stjórnarráðshúsið
    • Merki ráðuneytis
    • Afgreiðsla
    • Stofnanir
  • Ráðherra
    • Um ráðherra
    • Ræður og greinar
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni
    • Starfssvið
    • Málefni ríkisstjórnarinnar
    • Ráðherranefndir
    • Ísland 2020
    • Lagasamræming
    • Umbætur í stjórnsýslu
    • Nefndir
    • Þjóðartákn og orður
    • Sjóðir
    • Sjá öll verkefni
  • Útgáfa
    • Fréttsafn
    • Skýrslur og annað útgefið efni
    • Stefnur
    • Myndasafn
    • Áskrift
  • Lög og reglugerðir
    • Lög og reglugerðir
    • Lög
    • Reglugerðir
    • Forsetaúrskurðir
  • Annað
    • Áskrift og RSS
    • Fyrirspurnarform
    • Fyrir fjölmiðla
    • Veftré
    • Um vefinn

Samskipti

| Forsætisráðuneytið | Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg | 150 Reykjavík (sjá kort) | Sími: 545 8400 | Bréfasími: 562 4014 | Kt.: 550169-1269 | Netfang: postur@for.stjr.is |
| Aðgengisstefna | Öryggi og persónuvernd | Fyrirvari | Vefstjóri |


Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar
Þetta vefsvæði byggir á Eplica