Samstarfsráðherra fulltrúi Norrænu ráðherranefndarinnar á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tórontó
Katrín Jakobsdóttir, menntamála- og samstarfsráðherra, mun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tórontó þann 11. september kynna nýja áætlun norrænu menningarmálaráðherranna í svokölluðu hnattvæðingarferli en hún á að auka veg norrænnar menningar á alþjóðavettvangi.
Þá mun hún fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar taka þátt í að kynna High Five Toronto, nýja styrkjaáætlun á vegum Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins, sem miðar að því að efla dreifingu og kynningu á norrænum kvikmyndum sem eru að fara á alþjóðlegan markað.
Föstudaginn 11. september verður Katrín Jakobsdóttir samstarfsráðherra gestgjafi Norrænu ráðherranefndarinnar á fundi með ýmsum forkólfum í kanadísku menningarlífi og stjórnmálamönnum. Hún kynnir þeim hnattvæðingaráætlun menningarmálaráðherranna, sem nær fram til ársins 2012 og kveður á um aðgerðir til að markaðssetja norrænar kvikmyndir, tölvuleiki, bókmenntir, hönnun og arkitektúr. Fyrsta kynningarátakið er einmitt á kvikmyndahátíðinni í Torontó, en einnig verður efnt til norrænna viðburða á heimssýningunni í Sjanghæ 2010 þar sem norræn hönnun og landslagsarkitektúr verða í brennidepli og á bókamessunni í París 2011.
Laugardaginn þann 12. september efnir Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn svo til kynningar fyrir alþjóðleg sölu- og dreifingarfyrirtæki á 13 norrænum kvikmyndum sem eru sýndar á kvikmyndahátíðinni í Tórontó, svo og nýjum dreifingarstyrkjum fyrir erlenda dreifingaraðila sem kaupa réttindi til að dreifa þeim. Meðal þeirra eru tvær íslenskar kvikmyndir; Sólskinsdrengurinn eftir Friðrik Þór Friðriksson og The Good Heart eftir Dag Kára.
Sjá grein samstarfsráðherra Norræn menning á erindi við heiminn, birt í Morgunblaði 12. september 2009.

